Tuesday, June 10, 2003

Markmið Staðalímyndahóps
Markmið staðalímyndahóps er að fá samfélagið til að meta fjölbreytileika mannlífsins og berjast gegn neikvæðum ímyndum og auglýsingum. Í okkar samfélagi eru til fjölmargar staðalímyndir um hlutverk og útlit kvenna og karla. Staðalímyndahópur telur nauðsynlegt að miðla upplýsingum um þekkta skaðsemi margar þeirra ímynda sem haldið er á lofti og fræða um hvernig þær ýti undir úrelt kynjahlutverk og komi í veg fyrir að fólk almennt sjái og kunni að meta fegurðina í margbreytileikanum.

Aðferðir sem hópurinn beitir er t.d. að vera með uppákomur í kringum fegurðarsamkeppnir og fjölmiðlavakt vegna niðurlægjandi auglýsinga og umfjöllunar. Við trúum því að í flestum tilfellum sé um vanþekkingu að ræða þegar fyrirtæki auglýsa á kostnað annars kynsins eða umræðan byggir á neikvæðum eða niðrandi staðalímyndum. Hópurinn mun því senda ályktanir/ábendingar á auglýsendur, birtingaraðila og fjölmiðlafólk. Ábendingar um auglýsingar sem hópurinn telur að brjóti gegn 18. grein jafnréttislaga hafa verið sendar á Jafnréttisstofu, birtingaraðila og auglýsendur. Til að auka þekkingu um þessi mál hefur hópurinn leitað eftir samstarfi við aðila sem koma að hönnun, birtingu og gerð auglýsinga og mun hópurinn bjóða þessum aðilum að leita til staðalímyndahóps til að fá álit á auglýsingum með tilliti til staðalímynda og hefðbundinna kynjahlutverka.

Staðalímyndahópur vill einnig virkja neytendur og gera þá meðvitaðari um birtingarmyndir og áhrif staðalímynda. Neytendur eru hvattir til að nýta sér rétt sinn og láta seljendur vöru og þjónustu vita ef auglýsingar misbjóða þeim og í framhaldi af því sniðganga þau fyrirtæki sem halda áfram að auglýsa á þann hátt að það sé niðurlægjandi fyrir konur eða karla þrátt fyrir ábendingar þar um. Með þessum hætti vonum við að markaðurinn verði gagnvirkur.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?